Ránargötugengið

Lífið á Ránó

14.11.2007 16:38:53 / jokka

Meiri skóli

Jæja búin að sækja um á vorönn í VMA :D

Sótti um; heilbrigðisfræði 103, stærðfræði 103, sálfræði 203, íþróttir 103 í fjarnámi reyndar, samskipti man ekki nr hvað 8) og svo sæki ég um að komast á skyndihjálparnámskeið líka :D  Svo þegar stundataflan er komin þá leggst ég yfir hana með kennslustjóranum mínum og skoðum hvort ég komist yfir þetta allt saman, sumt get ég tekið í fjarnámi, en ég á nú ekki von á að ég taki þetta allt saman sko ;) ætla mér ekki að taka of mikið og drukkna svo í öllu saman. Þannig ég sótti um allt til öryggis ;)

Þannig ég er á leið í skólann 8)

Styttist í jólin, farið að örla á hugsunum eins og; hvernig er best að skreyta sólpallinn í ár..og hvað eigum við að baka? Hvað ættum við að taka margar laufabrauðskökur...tíhí...skellti meira að segja nokkrum vel völdum jólalögum á fóninn í morgun, allavega jólalögin frá Baggalút, þau rokka feitt!!!

Jæja nóg í bili...tata..


» 6 hafa sagt sína skoðun

13.11.2007 11:55:30 / jokka

Tíminn líður

svo hrikalega hratt! Gærdagurinn var reyndar rooooosalega bissy hehe...

Ákvað á sunnudagskvöldið að sofa yfir mig í gærmorgun, púff var gjörsamlega búin á því ;) Svaf af mér fyrsta tímann en mætti í tíma nr.2. Svo í stærðfærði þá kláraði ég bókina! fékk heimadæmi sem ég kláraði í tímanum og held ég fæ 10 fyrir 8) þannig ég þarf ekki að mæta á morgun hehe og "má" mæta á föstudaginn ef ég vil harf harf :D og svei mér þá...held ég þurfi ekki að taka prófið!!!

Gengur betur í enskunni, og búin að skrá mig í prófið ;) allt á góðri leið bara.

Sendi 1.kaflann af þýðingunni minni til Sölku, bókaútgáfu, og fékk svar þess efnis að þau ætli að skoða þetta vúhú!!!

Ástæðan fyrir aukinni orku og brasþörf er Spirulina ;) töfraefni sem ég fékk í Apótekinu. Þetta er unnið úr e-hverju sjávardóti, er alveg helgrænt á litinn og svínvirkar! Allavega á mig :D Ég hef prófað allan fj... en ekkert virkað. T.d. rautt eðalginseng, nei nei mín bara þurfti að sofa 18 tíma á sólarhring þegar ég át það :$ en þetta virkar!! LOKSINS! segi ég nú bara hehe...

Það kom upp leiðindamál í foreldraviðtali í gær, segi ekkert um það hér en það er þó í vinnslu. En annars fengu allar stelpurnar fullt hús stiga hjá kennurum og öllum gengur rosalega vel :D sem er nottla snilld ;)

Búið að pússa, hvítta, lakka, sparlsa, pússa meira, og mála...geeeeðveikt flott baðherbergið okkar, þannig í dag er planið að þrífa, ryksuga, skúra, setja upp gluggatjöld, og all stöffið sem við keyptum í RL Group, og flytja svo inn á baðið aftur...mmmm...æðislegt ;)

Jæja nóg í dag...tata..


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.11.2007 20:40:49 / jokka

Bussy helgi

Búið að vera nóg að gera um helgina ;) Búið að pússa innréttinguna á baðinu, hvítta hana og lakka. Svo er búið að mála eina umferð af rjómahvítum lit yfir þennan blessaða bláa lit sem var þarna :D og auðvitað er þetta geggjað flott :D

Við vorum að tala um að skipta út handklæðahenginu og wc rúllu haldaranum, en þetta kostaði milljón og fimmtíu bæði í Byko og Húsasmiðjunni, þannig okkur leist ekkert á það. Kíktum svo í RL Group í dag, og fengum wc rúllu haldara, handklæðahengi, 2 snaga og box fyrir eyrnapinna úr burstuðu stáli fyrir sama pening og bara handklæðahengi kostaði í stórvöruverslunum 8| kræst! En við erum ferlega ánægð með þetta ;)

Sé fram á að flytja aftur inn á bað á morgun eða hinn :D:D:D

Fórum í afmæli til Kolbrúnar Birnu í dag ;) þær mæðgur skelltu sér norður um helgina til að halda upp á afmælið, takk fyrir okkur :D Annars fór helgin í baðið bara!

Á morgun og hinn er frí í Oddeyrarskóla, þannig það verða vaktaskipti á börnunum.

Jæja nóg í bili...eigið góða viku :D

Tata..


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.11.2007 10:23:19 / jokka

Fleiri hringir...

Snýst enn í hringi púff...alltaf að koma upp fleiri og fleiri hugmyndir sem ég þarf að skoða og melta og velta fyrir mér!

En hey! mér leiðist ekki á meðan!! :lol:

Hætti þó við að hætta í enskunni ;) sat í allan gærdag og lærði og lærði og lærði og gerði verkefni, skilaði verkefni þar til að rófubeinið mitt sagði stopp og hingað og ekki lengra takk!

En mér sýnist ég hafa náð að komast það langt að ég sé komin á rétt ról ;)

Snjór í dag, hiti á morgun, frost næsta dag og svo koll af kolli, þetta fer alveg með geðið í minni og skrokkinn :^) fnussss umhleypingar eru það versta fyrir giktarsjúklinga! Mjaðmirnar og hnéin...fnusss

Ætla ekki að segja af né á um neitt núna...kannski seinna


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.11.2007 16:11:26 / jokka

Að hætta...eða ekki hætta...hætta...hætta við að hætta..

Jæææææææjaaa...hmmm...mikið að hugsa þessa dagana..eða í dag kannski...já nei...sko..

Ok byrjum á byrjuninni bara...fór í VMA í haust...3 fög...búin að segja mig úr einu faginu og er með bakþanka núna...en sko...finnst ekki gagn í að vera í skóla ef ég hef ekkert takmark..ekki satt??

Nú jæja..ég ákvað að fyrst ég gæti verið í dagskóla 3 morgna í viku hlyti ég að geta unnið hálfa vinnu á skrifstofu. Logiskt ekki satt. En svo fór ég í áhugasviðspróf í síðustu viku. Fékk niðurstöður í dag. Síðan þá hef ég flækst í marga hringi. Kom svolítið önnur niðurstaða en ég átti von á...8| Og dúddinn sem setti mig í prófið talaði semsagt í klukkutíma við mig í morgun...og ráðlagði mér á endanum að fara í skóla í 3 ár. Já...ég er búin að liggja á netinu og skoða þetta ákveðna fag sem hann ráðlagði mér að fara í , og já mér líst ágætlega á það sko..en get ekki fengið upplýsingar fyrr en á þriðjudaginn...þannig ég veit ekki hvort ég næ að taka þetta í fjarnámi eða hvort ég þurfi að fara e-hvað suður...en það kemur í ljós. Svo sá ég annað...það er reyndar soltið meira nám og það í háskóla...þarf að liggja aðeins yfir þessu...

En ég virðist vera í þessum gír núna...hætta við að hætta eða hætta við að hætta ekki...?? hmmm..skitsó...that´s me :D

tata..


» 9 hafa sagt sína skoðun

07.11.2007 11:08:09 / jokka

Nóvember

Næstsíðasti mánuður ársins er kominn. Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt!

Finnst það hafa verið í síðustu viku sem ég var að skjóta upp flugeldum í Ránó með nágrönnunum :D

Jæja...fréttir; ég er hætt í enskunni :^) Hefur gengið illa í vetur, og nú var svo komið hjá mér að ég var að fá 2,2 til 4,4 fyrir verkefni sem mér fannst ég vera 100% á...þannig að þungu fargi er af mér létt!

Gengur mjög vel í stærðfræði og íslensku í staðinn :D Horfa á björtu hliðarnar, það er það sem máli skiptir. Ég ætla ekki í skólann eftir áramót, heldur stefni ótrauð á 50% vinnu. Búin að sækja um 2 vinnur, og er alltaf með krosslagða fingur og tær ;)

Því miður tókum við engar myndir af okkur í búningunum á laugardagskvöldið :( hreinlega gleymdum því! En ef e-hver á myndir af okkur, væri gaman að fá þær ;) en við ætlum strax að undirbúa okkur næsta grímuball tíhí..þetta er svo gaman :D

Erum byrjuð aðeins á baðinu, búið að pússa eina hillu og hvítta, gg flott eins og unglingarnir segja hehe..

Nóvember er afmælismánuður! Jósý mín átti afmæli þann 4.nóv. Til hamingju með það dúllan mín ;) Halli á svo afmæli 21, Anna Kristjana 22, Logi Steinn 26, Páli 27, Kolbrún Birna 30, Alex 21. Örugglega fleiri sem ég man ekki eftir í augnablikinu hehe...

Jæja þarf að finna mús...eða juðara sem er kallaður mús...tata...


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.11.2007 21:38:07 / jokka

Grímuball

Skelltum okkur á grímball i gærkvöldi ;) ógó gaman nottal hehe..Biggi minn var Mozart, með hvíta krullaða kollu og sítt að aftan :lol: í púffskyrtu og flottum jakka við. Fékk þetta á búningaleigunni í bænum Fabíólu, massa leiga sko :D Ég var svona sambland af miðaldafrú og eða frú frá 1940 :D Semsagt í skósíðum grænum kjól (sem ég á sjálf), með svarta hanska upp fyrir olnboga, með uppsett hár og pínu púðrar (al la Guðný mín ) og í grænu hempunni minni. Öss við vorum þvílíkt fín við hjónin tíhí...

Partýið var í Golfskálanum og var Pétur Guðjóns DJ, við dönsuðum og skemmtum okkur mjög vel, kíktum svo á Vélsmiðjuna og var ekki laust við að það var tekið eftir okkur hahahaha :D en við vorum ekki þau einu af grímuballinu sem mættu þarna, rosalega gaman bara ;)

Annars er þetta búið að vera rosa góð helgi hjá okkur hjónunum. Tókum til í gær, svona endurraða húsinu má segja, þannig að nú er meira pláss og meiri stíll ;) ætluðum að fara í baðið, en svo...æi það er nægur tími til þess líka ;) gott að hvíla sig og hafa það náðugt bara við tvö stundum :D

Ætla snemma í ból í kvöld, orðin soltið þreytt...veit ekki afhverju tíhí...eigið góða viku!


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.11.2007 12:05:37 / jokka

Afmæli :D

Silja okkar á afmæli í dag :D litla stýrið er semsagt orðin 14 ára ;) Til hamingju dúllan mín 8)

Guðný Lára vinkona á stórafmæli í dag :D komin á fertugsaldurinn hahahahaha :D nei nei hún er 30 ára í dag ;) Til hamingju með það elskan og góða skemmtun í kvöld :D

Við hjónin erum að fara á árlegt grímuball í kvöld ;) víííí það verður gaman :lol:

Skýrsla síðar...


» 3 hafa sagt sína skoðun

30.10.2007 20:01:41 / jokka

Breytingar

Alltaf e-hvað um að vera á Ránó tíhí..;) jú jú hér er semsagt komið RISAstórt skrifborð þannig að Biggi minn hefur flennipláss til að vinna heima og mér líður bara eins og ég sé með einkaoffice í stofunni :lol: svo er kominn hilluskápur í borðstofuna, settum skenkinn undir sjónvarpið og það stækkaði bara um 100% og var nú ágætlega stórt fyrir sko hahahaha 8) rosa flott hjá okkur bara :D

Fór ílla með gítarinn sem ég gaf manninum mínum í afmælisgjöf :( en hann er eiginlega skemmdur en ég ætti nú að geta skipt og fengið nýjan ;) erum að spá í að útbúa tónlistarhorn uppi jú jú alltaf að spá og spekúlera eitthvað...Biggi var nefnilega að tæma gömlu skrifstofuna sína og þess vegna kom þetta hingað. Öss marr rosa flott :D

Svo um næstu helgi er stefnan sett á að gera upp baðið eftir lekann vúhú....held það verði rosalega flott þegar það er búið :D Eins og segi...alltaf e-hvað um að vera á Ránó :D

Allt á bólakafi í snjó núna og moksnjóar meira bara! Veit ekki hvar þetta endar, svo er þvílíka hálkan á götunum púff..marr læðist með gangstéttum bara þegar marr er á ferðinni...;)

Jæja nóg núna..tata...


» 3 hafa sagt sína skoðun

29.10.2007 19:43:32 / jokka

Nautn...

Fyrir mörgum árum...1995 minnir mig, lék ég í stuttmynd sem bar heitir Nautn...;)

Sá hana í bíó það árið og hef ekki séð hana né heyrt síðan. Svo fórum við hjónin á bókasafnið um helgina og fundum mynd er heitir Nei er ekkert svar. Ég minntist ekki hafa séð hana þannig við tókum hana bara. Svo fórum við að horfa og þá fór að rofa til í hausnum á mér, eitthvað kannaðist ég við þessa mynd...8| þá allt í einu mundi ég að ég hefði séð þessa mynd í bíó, þegar ég fór að sjá stuttmyndina sem ég lék í!!

Þannig Biggi minn fór á netið í dag og fann þessa stuttmynd :D downlodaði henni og nú á ég hana á disk ;) tíhí..ekkert smá skrýtið að sjá sjálfa sig í bíómynd hahahaha :D eldist nú bara vel verð ég að segja, sko ég þá...hehe...en gaman að eiga þetta. Ég lék líka í annari stuttmynd en held hún hafi aldrei verið gefin út né sýnd neinstaðar...veit ekki einu sinni hvað hún átti að heita...hmmm...man bara að Árni Pétur lék aðalhlutverkið og hún var tekin upp í Landsbankanum í miðbæ Reykjavíkur...

Annars snjóaði áðan, börnunum til mikillar gleði og hamingju hehe...sótti um vinnu í dag..krossleggja fingur og tær ;)

Jæja nóg núna...tata..


» 5 hafa sagt sína skoðun

27.10.2007 17:21:41 / jokka

Margt á seyði..

Biggi minn átti ánægjulegan afmælisdag ;) Gaf honum gítar sem honum hefur lengi langað í og býst ég við að brátt hljómi yndælistónar um húsið :D Stóru stelpurnar færðu honum ManUtd sængurföt og liggur við að ég þurfi að fara að kaupa mér Liverpool rúmföt svona til að vera með hehe...Svo fékk hann rauðvínsflöskur, kíki og fl frá vinum og vandamönnum :D

Hann eldaði dýrindis læri í gærkvöldi, útí garði í holu, og stóðu allir á blístri í gærkvöldi, sérstaklega eftir að ís með fjölþjóðamarssósu var á boðstólnum ;) nammi namm...

Kíktum svo á Allann aðeins og svo niður á Vélsmiðju. Rosa fínt bara :D

En við fengum smá gjöf í gær hjónin ;) við þurfum ekki að selja húsið okkar :D:D:D víííí ég er svo hamingjusöm með það vúhú!!! "stappaniðurfætiogtakariverdanceáþetta" hahahaha :D fæ því að sjá krókusana og túlipanana koma upp í garðinum okkar í vor víííí æði :D

Annað; ég er búin að vera að vesenast með mig eins og þið vitið undanfarnar vikur með hvað ég eigi að læra og hvað ég eigi að gera og hvað ég eigi að verða þegar ég er orðin stór. Semsagt ílla haldin af verðandaveiki:lol: En svo fór ég að hugsa; ok mig langar EKKI í skóla hmmm...hvað kann ég? hvað get ég? Ok ég get verið í skóla fyrir hádegi...ok flott...mig langar ekki lengur að vera í svona óöryggi með líf mitt....ok....þannig allt í einu sá ég ljós (hreinlega kviknaði á ljósaperu fyrir ofan hausinn á mér hehe) Ég ætla að vinna. Já ég ætla að finna mér vinnu fyrir hádegi. Hvað kann ég?? jú skrifstofustörf af öllu tagi, tölvuvinna af nánast öllu tagi...það get ég og kann.

Ég ætla semsagt að vinna frá morgni og fram til kl 1. Þá get ég farið heim, tekið á móti stelpunum mínum úr skóla, málað, sungið, skrifað eða hvað sem ég vil eftir hádegi og á kvöldin ekki satt?? :D

Þannig að núna er ég í atvinnuleit. Ég er búin að ræða þetta við sjúkraþjálfarann minn og hann vildi endilega koma mér í vinnu á Eflingu  :lol: en sagði svo að sennilega væri nú ekkert laust þar hehe...ég er búin að ræða þetta við Starfsendurhæfinguna og þeim leist nottla rosalega vel á þetta ;) tíhí...

Þetta er þá framtíðarplanið mitt. Halda húsinu okkar, köttunum okkar, börnin þurfa ekki að skipta um skóla, þurfum ekki að flytja (omg hvað ég er þreytt á því!!) ég lækka ekki í launum þó ég vinni bara hálfan daginn (fjandakornið fæ varla minna en ég er að fá í bætur fnussss) hitti fólk en næ samt að vera með stelpunum mínum ;) og nottla manninum mínum :D

Jæja nógu langt blogg í dag...tata...


» 4 hafa sagt sína skoðun

26.10.2007 10:50:35 / jokka

Spúsi minn

Ástin mín, innilega til hamingju með daginn :D

Hlakka til að eiga næstu ár með þér

Knús þín ástkæra eiginkona :D


» 6 hafa sagt sína skoðun

24.10.2007 18:42:07 / jokka

Stuð..

Nóg að gera þessa dagana ekki laust við það!Misha og Biggi fóru í gær austur í Mývatnssveit, stoppuðu hjá Goðafossi og segir maðurinn minn að það sé soltið öðruvísi að skoða Ísland með gestaaugum ;)

Gaman að hafa Misha hérna, ég reyndar skil ekki orð í rússnesku og þarf hann að tyggja oní okkur hvað hlutirnir heita á rússnesku :lol: Hann gaf Önnu rússneskt leikfang sem virðist vera sambland af birni og mús og er alveg svakalega krúttlegt. En við Anna getum ekki munað hvað kvikindið heitir hehe :D Við spyrjum hann alveg 15x á dag!! Eins gaf hann okkur svona tréstyttu, þið vitið ein stór svo opnar maður hana og þá er minni inní og svo koll af kolli, við köllum þetta Babúsku en þetta heitir e-hvað annað, sem ég get ekki munað! En Babúska þýðir víst amma :D þetta man ég þó hahahahaha...

Fór til námsráðgjafa í gær, beið í 1.5 tíma eftir henni, og eftir 5 mínútna spjall við hana stóð ég upp og þakkaði fyrir mig og fór. Hún þekkir mig ekkert og spurði ekkert, sagði mér að fara í málarann 8| ég sagði nú pent að ég væri ónýt í skrokknum og gæti ekki málað sko...æi þetta fór e-hvað öfugt í mig bara held ég. En ég fékk að vita það að ég hef frest til 16.nóvember til að ákveða hvað mig langar að læra, og ég þoli ekki svona pressu :evil: ég meina ég hef ekki getað ákveðið mig í 30 ár og á svo að ákveða það á tæpum mánuði!! Nei ekki alveg að gera sig...

Biggi minn á afmæli á föstudaginn ;) þessi elska verður 37 ára, semsagt ári eldri en ég!! tíhí...smá skot á hann hahahahaha...

Saumaði gardínur í morgun, rosa dugleg ;) Elsku besta vinkona mín hún Birna kom í gærkvöldi og massaði þessa heimildarritgerð með mér :D:D:D ég er ekki höndla ritgerðir nefnilega þegar þær þurfa að byggjast á heimildum. Ekkert mál ef ég má ráða sjálf hvernig ritgerðin er, en þegar kemur að svona þá er ég alveg lost. Takk Birna mín :D

Jæja vonandi tekst að koma færslunni inn núna...

..tata.. 


» 7 hafa sagt sína skoðun

23.10.2007 09:48:40 / jokka

Mazza prógramm ;)

Mikið að gera þessa dagana sem endranær ;) Misha fór til Húsavíkur í gær og fannst það óendanlega gaman :D Biggi minn skaust suður en kom þó heim aftur í gærkvöldi. Við Anna vorum þá bara einar heima og nýttum tímann í að læra og spjalla :lol: alveg er þetta yndislegt barn hún Anna mín 8)

Biggi var svo bara hálflasinn þegar hann kom heim greyið :( þannig hann vinnur heima bara í dag, ég ætla að skreppa með Misha upp í Hlíðarfjall á eftir og e-hvað meira á þvæling, svo er ég að spá í að skreppa með hann í Jólahúsið, en ekki fyrr en Anna mín er komin heim, ekki hægt að fara þangað barnlaus!! tíhí...

Hún Lóa mín á afmæli í dag :D Enn og aftur til hamingju með það ;) Hún var með afmælispartý síðasta laugardagskvöld en því miður, ég fór norður, en ég náði þó að skella smá knúsi og kossi á stelpuna á föstudagskvöldið ;)

Ég er enn á krossgötum með hvað ég eigi að gera í sambandi við þetta líf mitt 8| hvað ég eigi að læra, hvað ég eigi að gera, hvert ég eigi að stefna...??? Ræddi við góða vinkonu mína í gær og svei mér þá...ég er að fara að tala við námsráðgjafa á eftir :lol: takk Jósý mín :D vissi ég gæti treyst á þig að sparka aðeins í rassinn á mér hehe...

Annars allt í góðu hérna megin!

Tata...


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 33
Myndir af okkur